Já, ég hélt galvösk til sjúkraþjálfa
liðlega fyrir hádegi og ætlaði mér nú heldur betur að taka
rækt líkama míns með trompi. Skellti mér á hlaupabrettið til
upphitunar en ekki leið á löngu þar til ég
fór mása, hvæsa og blása. Til þess að hafa þetta sem
nákvæmast liðu svona um það bil átta sekúndur
Það er
deginum ljósara að eithvað verð ég að gera í þessum málum ef
ég vil ekki fá súrefniskút í 30 ára afmælisgjöf. Það væri þá
allra helst eitthvað sem krefst þess hvorki að ég hreyfi
mig né hugsi, ég er jú einna hrifnust af þesslags hlutum. Nú
er eg líka orðin ráðsett húsmóðir (það er ef það felst í
því að sitja sem fastast við tölvu daglangt) en ég og
Arnór settum upp hringana á laugardaginn síðasta.
Brúðkaup verður einhvern tímann eftir að ég klára skólann
þannig að þið takið kannski frá einhvern góðan sunudag á
árabilunum 2009-19. En þessi trúlofun og trúlofanir yfir
höfuð fengu mig til að leiða hugann að ástinni. Ég er
sannfærð um það að ég elski hann en ég er jafnvel
enn sannfærðari um það sem einhver vitur maður sagði " Margur
hefði aldrei orðið ástfanginn hefði hann aldrei heyrt þetta
orð." Ótrúlega mikið til í því, að fólk sætti sig bara
við það sem það hefur og reyni að sannfæra sjálfa sig um að
það elski manneskjuna bara af ótta við það að geta ekki
betur.... Sorglegt en engu að síður satt. Kannski
með ólíkindum niðurdrepandi pælingar hjá nýlofaðri manneskju
en ég get bara ósköp lítið að því gert
Fór með son minn í
fyrsta sinn í ungbarnasund á laugardaginn var og allt í góðu
lagi með það og stóð hann sig með stakri prýði. En það að
fara í sund þýðir alla jafna að maður þurfi að klæðast
sundfötum. Ég verð nú bara að spyrja, hver átti eiginlega
hugmyndina að þessum skaðræðisgripum?? Sú manneskja hefur
augljóslega ekki þjáðst af neinu af eftirfarandi :
appelsínuhúð, offitu, smá fitu, miklum hárvexti, stuttum
útlimum, lafandi rasskinnum, tepokabrjóstum eða
öðru í þeim sama dúr. Fussumsvei segi ég bara og skrifa!
Nú held ég að nóg sé komið í bili, lifið
heil.
Ta,ta Linda " Adidas sundgalli með sokkum?"
Markúsardóttir