|
|
26.08.2005 18:07:24 / Adnil
Skólinn hóst að nýju á þriðjudaginn mér til heilmikillar gleði
og ánægju (nei, ég er ekki að vera kaldhæðin). Fyndið hvað maður er
alltaf með eindæmum skipulagður í byrjun annar, allt á sinn vísa
stað og glósurnar með öllu óaðfinninlegar.. Svo eftir því sem líður
á verða þær sífellt óskiljanlegri og óskiljanlegri þar til maður
hættir að þekkja söguna frá félagsfræðinni Mér leið nú svolítið
eins og sveitadurgi fyrsta daginn minn þegar ég dró upp glósubók og
blýant, reiðubúinn til að hripa niður hvert einasta viskunnar orð
sem kennarinn ætlaði að deila með nemendum sínum. Þá voru
fartölvurnar dregnar upp hver á eftir annari og ég fékk ófá "Þú
veist að það er árið 2005?" augnaráð. Ég herti bara takið á
blýantinum mínum og brosti vingjarnlega (vantaði bara hestalyktina,
tannleysið og tóbaksklútinn til að fullkomna ímyndina) Krúsinn minn
ætlar að vera allan mánudaginn hjá dagmömmu í fyrsta sinn... Það
fylgja því frekar blendnar tilfinningar, finnst hann ekki vera nógu
stálpaður til að hafa ekki mömmu hjá sér. En honum gæti ekki
verið meira sama, vinkaði bara bless af ákafa þegar aðlögunin
hófst og gerði svo heiðarlegar tilraunir til að drepa gæludýr
heimilisins (vesalings grunlausan högna). Verð nú að segja ykkur
frá óförum mínum en mér tókst auðvitað ekki að
komast í gegnum tvo daga í skólanum án þess að gera mig að
athlægi. Var í félagsfræðitíma og þar vorum við að ræða sjálfsvíg.
Kennarinn talaði um hvað það væri undarlegt hversu há tíðnin
væri í Asíu. Þá minntist ég á að það væri vegna stoltsins, saman
ber hírósíma sjálfsmorðin. Kennarinn glotti og sagði svo
" Meinaru ekki harakiri?" Í 19000 sinn á þessu ári breyttist
ég í epli í yfirstærð en til allrar hamingju virtust "börnin" sem
eru með mér í tíma ekki hafa hugmynd um í hverju vitleysan
félst
Ta, ta Linda " er eitthvað meira að segja?" Markúsardóttir
»
20.08.2005 20:01:51 / Adnil
Já, þá er
menningarnóttin/helgin/sólarhringurinn runninn upp. Teitumst
áfram! (a.k.a lets´s party on) 
Ta,ta Linda "menningarlega"
Markúsardóttir.
»
18.08.2005 22:59:49 / Adnil
»
14.08.2005 08:23:39 / Adnil
Klukkan er óhugnanlega lítið á þessum
sunnudagsmorgni en þegar vinnan kallar þá svarar
Lindan (eða eitthvað í þeim dúr). Það er raunar
ósköp ljúft að keyra svona árla morguns um helgar,
enginn á götunum og í 10 mínútur hefur maður heiminn
algjörlega útaf fyrir sig. Í dag lýkur svo ráðstefnu hér
á hótelinu og við tekur fjögurra daga frí Hlakka
mikið til að geta eytt smá tíma með Krúsanum mínum, er
að fá snert af samviskubiti yfir tímaleysinu sem hrjáir
mig þessa dagana en það stendur allt til bóta. Hefði einnig
að öllum líkindum stærra samviskubit ef ég ætti ekki í
drenginn minn og á. En ég verð bara að deila því með ykkur
hversu mikil himnasending hann sonur minn er, ég hafði
aldrei gert mér það í hugarlund að hægt væri að elsku nokkurn
svona mikið og hvað þá svona algjörlega
skilyrðislaust. Ég trúi því að hann geri mig að betri
manneskju, hann hvetur mig til að gera mitt allra
besta í öllu því sem ég tek mér fyrir hendur svo ég
geti verið honum jákvæð fyrirmynd. Jæja, ætli þetta sé ekki
komið ágætt... Svona áður en væmnin tekur öll völd og
ég fer að skrifa um sólina og blómin 
Ta,ta Linda " Fríið bíður"
Markúsardóttir
»
10.08.2005 14:43:09 / Adnil
Mikið óskaplega er gott að vinna svona
vaktavinnu og geta útrétt á virkum dögum. Já, útrétt segi ég
og skrifa! Búin að bralla ýmislegt í dag, sækja mér forláta
(takið eftir forláta, en ekki forljóta) línuskauta sem ég
ætti vandræðalaust að geta brotið 4-6 bein á. Fór til læknis
eftir að pabbi fékk kransæðastífluna í kólesteról athugun og
þar kom í ljós að ég hef arfgenga kólesteról hækkun í blóði.
Klöppum fyrir því. En það þýðir með öðrum orðum, ég má ekkert
borða sem mér finnst gott!! Í staðinn fæ ég krúsku (fræ og
trefjar með smá hafragraut), vítamín, meiri trefja og
hafraklíð og þessu fæ ég svo að skola niður með
gvendarbrunnsvatni og kjarnmikilli sneið af mjólkur fríum
osti (betur þekktur þó sem PLAST!). Það er mögulegt að ég sé
að ýkja örlítið núna en þó bara mögulegt... Ég verð ss
afskaplega grönn innan skamms með skap á við mannýgt
naut sökum súkkulaðileysis Já, það er vandlifað í
heimi heilsufíklanna.. Gunni minn, hvernig ferðu að??

Ta,ta Linda "holltmeti er ofmetið!"
Markúsardóttir
»
06.08.2005 23:05:50 / Adnil
Ég gekk göngu hinna hýru og stoltu í dag Í FYRSTA SINN! Hef
undantekningarlaust verið að vinna á þessum merkisdegi og hef því
ekki getað sýnt stuðning minn við aukin réttindi samkynhneigðra í
verki fyrr en nú. Fyrir þau ykkar sem ekki vita er hún Berglind
systir mín lesbísk.En hún og Brynja konan hennar eignuðust
stúlkubarn í apríl á þessu ári.En þar sem Brynja ól ekki barnið og
er ekki tengd því "blóðböndum" á hún ekki lagalegan rétt á
fæðingarorlofi! Þetta finnst mér vægast sagt til háborinnar skammar
enda held ég að stoltari og yndislegri mæður finnist vart í
heiminum gervöllum.Félagsmálaráðherrann, Árni Magnússon hélt ræðu í
lok göngunnar sem lofaði góðu, vonandi að staðið verði við stóru
orðin og réttindi samkynhneigðra verði nákvæmlega þau sömu og
gagnkynhneigðra. Er ekki nógu mikið af illgirni og hatri í
heiminum? Þurfum við virkilega að berjast gegn ástinni líka?? Tja,
mér er spurn... Ta,ta Linda " ástin er ávalt af hinu góða"
Markúsardóttir
»
03.08.2005 15:03:54 / Adnil
Þá er ríflega tveggja ára sambandi míns og
Arnórs endanlega lokið. Ekkert drama þó, við tókum bara
einfaldlega þá ákvörðun að þetta væri okkur og yndislegum
syni okkar fyrir bestu. Það hefur svo sem gengið á ýmsu en
þetta er óskaplega skrýtið. Það þarf að lærast upp á nýtt að
hugsa bara fyrir einn. En þið vitið hvað sagt er, guð lokar
aldrei hurð án þess að opna glugga. Þannig að þetta er án
alls efa bara upphafið á einhverju nýju og spennandi
Ég sit hérna í vinnunni núna, dagsverkin búin
og aðeins 5 og hálfur tími eftir... Enda örugglega á
því að kaupa mér garðskála klædddan með hlébarðaskinni á ebay
ef það fer ekki að sjá fyrir endann á þessari gúrkutíð.
Skellti mér í bæinn á laugardaginn með Lísu ljósi og Lóu og
var það bara ljómandi fínt, enda ekki félagsskapur af verri
endanum. Kom heim rétt fyrir fimm og orðinn þetta háöldruð
þótti mér nú ósköp ljúft að faðma rúmið mitt aðeins. Þegar ég
svo opnaði augun daginn eftir fannst mér eins og eitthvað
þungt og sligandi lægi ofan á bringunni á mér. Mér þótti það
þó fremur furðulegt enda held ég að hvorki fataskápurinn né
skrifborðið mitt séu Íslandsmeistarar í hástökki húsgagna. En
þegar betur var að gáð var þar ekkert nema álag af völdum
reyksins í bænum á vesalings lungun mín. Sussummsvei og nei,
reykinn vil ég ei!! Nei ég er ekki laundóttir Þorgríms
Þráinssonar, aðeins stúlka sem væri fullkomlega sátt við það
að geta skemmt sér án þess að þurfa að þvo fötin mín og
sjálfa mig alveg inn að beini að djammi loknu! Svo mörg voru
þau orð.
Ta,ta Linda " allir í Gay pride göngu!"
Markúsardóttir
»
|
Heimsóknir
Í dag: 14 Alls: 47082
|