Mér er sama hversu mikið ykkur leiðist, ekki (ég endurtek) ekki týna lyklunum ykkar öllum á einu bretti .. Ef þið sjáið einhver akandi um á toyotunni minni og virðist stefna í átt að heimili foreldra minna þá megið þið alveg endilega láta mig vita. Heyrðu já, ég sagði heimili foreldra minna þar sem ég er loksins , loksins , loksins flutt og er nú stoltur lyklaeigandi ( var það amk þangað til í gær) að bakhúsi ( bílskúr er sennilega réttara en hljómar ekki jafn vel) að Víðimlel 40 , 107 Reykjavik. Þaðan er ég um það bil 4 mínútur að labba í skólann sem kemur sér sérlega vel akkúrat núna þar sem enginn augna, nefs né varalykill er til að bílnum mínum. Eða eins og við háskólafólkið segjum, jei.
Ta,ta Linda "nennir einhver að hringja í lyklana mína" Markúsardóttir