Mighty Markúsardóttir
20.03.2007 21:27:08 / Adnil

Miðvikudagsblogg!

 

Ákvað að breyta aðeins út af vananum og blogga á miðvikudegi.. Föstudagur virðist af einhverjum ástæðum oftast verða fyrir valinu en hvers eiga vesalings miðvikudagarnir að gjalda? Ég hef síðan síðast komist að því að hann ástkær sonur minn er snillingur. Hér meðfylgjandi eru nokkur dæmi :

  • Pabbi hans var að skutla honum á leikskólann. Markús sagðist þurfa að fara til læknirisins af því að hann prumpaði. (þ.e.a.s Markús, ekki læknirinn)
  • Ég sótti Markús á leikskólann og hann tilkynnti mér það að hann gæti ekki farið í búðina af því að hann átti enga peninga (vil taka það fram að barnið er tveggja og hálfs árs)
  • Við mæðginin vorum á leiðinni heim áðan og eins og svo oft áður sungum við í bílnum. Verandi sú góða móðir sem ég er sagði ég við Markús að hann væri duglegur að syngja. Þá heyrist í mínum ,,Já, ég er líka með svo fallega rödd"
  • Markús sat á koppnum og ég spurði hann hvort hann væri búinn að pissa. ,,Nei, það er bilað" svaraði minn. Ég varð auðvitað að spyrja hvað væri bilað. ,,Oh, þetta typpi er bilað!"

Hver þarfnast sjónvarps með annan eins snilling inni á heimilinu? :) 

Ta,ta Linda ,, Blessaða barnalán" Markúsardóttir    


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 14:46:40 / Adnil

Karlmenn eru eins og..

Eins og dyggir lesendur mínir hafa mögulega tekið eftir er ég á einhverju sem virðist ætla að verða óendanlegt ,,karlmenn eru ekki vinir mínir" skeiði.. Þessi listi er í tilefni þess, njótið vel (eða illa, séuð þið karlmenn :) )

 Men are like..

...placemats
they only show up when there's food on the table

...mascara
they usually run at the first sign of emotion.

...bike helmets
they're good in emergencies but usually just look silly.

...government bonds
they take so long to mature.

...copiers
you need them in reproduction but that's about it.

...lava lamps
fun to look at it but not all that bright.

...bank accounts
without a lot of money they don't generate a lot of interest.

...high heels
they're easy to walk on once you get the hang of it.

...curling irons
they're always hot and always in your hair.

...mini skirts
if your not careful they'll creep up your legs.

...handguns
keep one around long enough and your gonna want to shoot it.

Ta,ta Linda ,,hvernig er ég ennþá einhleyp?" Markúsardóttir


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 11:33:09 / Adnil

Frábæri föstudagur - Partur II

Já, maður rétt hallar aftur augunum með inflúensu og 40 stiga hita og enn einn föstudagurinn er orðinn að raunveruleika. Það án þess að spyrja kóng eða prest! Held því samt staðfastlega fram að maður eigi oftar að vera nær dauða en lífi úr flensu.. mikið óskaplega verður maður amk hamingjusamur þegar heilsan snýr aftur :) Ég missti samt af Incubus sem var miður en það þýðir ekki að gráta Björn bónda! Eða bandarískar hljómsveitir almennt ef út í það er farið.. Mér tókst í gær að klemma mig inni í lófanum á íþróttatöskunni minni.. Ekki alveg eins og fólk er flest og suma þá hluti sem koma fyrir mig væri ekki hægt að skálda :) En lífið er gott að vanda og ég er full af lífsorkunni og ánægjunni sem vilja svo gjarnan fylgja þessum síðasta vinnudegi vikunnar. Ég bið ykkur vel að lifa og læt fylgja með eitt ljóð sem er því miður ekki eftir mig..

Roses are red

violets are blue

In Soviet - Russia

poem writes you!!

 

Ta, ta Linda " das is good und fantastik" Markúsardóttir


» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 47103