Já blog var það heillin.. Ég er frekar syfjuð þannig að líkur
eru á því að þessi skrif mín verði jafnvel samhangislausari og
ruglingslegri en venjulega, bara svona svo að þið búið ykkur undir
það. Ég fór í bæinn í gær og nei, ég ætla ekki að koma með ,,ég
hitti manneskju I og II og við förum á stað A ,B og C þar sem
við hittum manneskju III og IV ". Það var ágætt, fyrir utan smá
uppköst (ekki mín eigin, þótt að það sé auðvitað alltaf góð hugmynd
að gera uppkast). Í öllum heila bænum hitti ég einn karlmann
sem virtist vera eitthvað spunnið í en annað kom fljótt á daginn
: 1. Hann var bandarískur (reyndar svo að hann var
eiginlega bara Bandaríkin í polobol), 2. Hann á kærustu í
Kentucky 3. Hann dansar eins og ég ímynda mér að
kláðamaur á stærð við manneskju mundi gera.. Það hefur annars
sorglega fátt drifið á daga mína síðan síðast, þarf aðeins að
bregða mér niður í vinnu á eftir en er svo komin í sumarfrí
fram í júlí! Ég tók reyndar inntökupróf í íþróttafræðina við HR um
síðustu helgi og það gekk bara ótrúlega stóráfallalaust fyrir
sig, það leið amk hvorki yfir mig né reif ég buxur eða
vöðva í mestu átökunum. Þá vitið þið það, eigið góða
helgi!
Ta,ta Linda ,,sum frí eru betri en önnur" Markúsardóttir