Mighty Markúsardóttir
23.02.2009 13:34:11 / Adnil

Fíkniefnaakstur

Fólkið í ræktinni er alveg hætt að standa sig í því að útvega mér hluti til að skrifa um en sjálfstæðisflokksgagnið, betur þekkt sem Morgunblaðið, virðist hafa komið í þess stað. Í gær var á www.mbl.is stutt grein með eftirfarandi yfirskrift : Handtekinn fyrir fíkniefnaakstur. Greinin fjallaði um mann sem var handtekinn fyrir að keyra undir áhrifum einhverra ónefndra fíkniefna. Ég komst samt ekki hjá því að sjá fyrir mér einhver bólugrafinn, misskilinn unglingspilt með poka af ýmsum vel völdum ánetjandi efni í aftursætinu sem væru að kúga hann til að keyra sig úr einu teitinu í annað. Það er amk ekki talað um að fólk sé stöðvað fyrir áfengisakstur, enda færi þá illa fyrir þeim hugmyndasnauðu sem finnst alltaf jafn stórsniðug hugmynd að gefa fólki yfir tvítugu flösku af einhverjum vínanda í afmælisgjöf. Til að gera langt blogg stutt, handtekinn fyrir að keyra undir áhrifum fíkniefna hefði mér þótt mun eðlilegri fyrirsögn.

Ta,ta Linda " jú, jú AUÐVITAÐ er ég að læra" Markúsardóttir

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.02.2009 13:33:54 / Adnil

Mótun

Á forsíðu Morgunblaðsins þann 19. febrúar er mynd af Bjarna Karlssyni, sóknarpresti Laugarneskirkju, í myndastyttuleik með börnum úr yngri bekkjum Laugarnesskóla. Undir myndinni kemur fram að börnin mæti í kirkjuna einu sinni í viku til að hlusta á sögur úr Biblíunni og fara með bænir. Ég og mín meðvitaða þjóðarsál getum hreinlega ekki orða bundist yfir þessu. Að nafninu til erum við reyndar kristin þjóð enda reynist öllum óhörnuðum unglingum erfitt að segja nei við fúlgum fjár og ýmsum mis nauðsynlegum rafmagnstækjum. Raunveruleikinn er þó allt annar og það er fráleitt að gera það að föstum lið innan skólastarfsins að hlusta á lygisögur og biðla til illgjarnar og mótsagnakenndrar goðsagnapersónu. Einn af þeim sem ég nefndi þetta við kom með þá lausn að börn þeirra foreldra sem væru mér sama sinnis fengu einfaldlega að vera eftir í skólanum. En er það einhver lausn ? Ég geri mér fulla grein fyrir því að það er fólk þarna úti sem trúir á guð og er þeim það fullkomnlega frjálst enda ríkir trúfrelsi hér á landi. En trúfrelsi merkir ekki það sama og kristsfrelsi. Af hverju er ekki farið með börnin í kaþólsku kirkjuna, á samkomu hjá Fíladelfíu og Krossinum, til ba´háa, búddista og ásatrúarmanna og lofa þeim, kjósi þau að trúa á eitthvað að því loknu, að taka upplýsta ákvörðun?  Eins og Dawkins segir, börn eru ekki ausin vatni sem sjálfstæðismenn, grænmetisætur eða verkfræðingar þótt að foreldrar þeirra séu það og hví ætti þá að reyna að troða þeim í krosslaga form ? Superintendent Chalmers úr The Simpsons má eiga lokaorð þessa bloggs : God has no place in the public school.  

Ta, Ta Linda " afmótuð" Markúsardóttir.

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.02.2009 15:50:51 / Adnil

Margur er knár ..

,, Mamma ég var að kasta drullu í hús". ,, Nú, af hverju varstu að því ? " ,, Af því að Davið Oddsson er leiðinlegur karl". Þetta samtal átti ég við son minn á mánudaginn sem leið og fyrir ykkur sem vitið það ekki þá er hann einungis á 5. aldursári. Illa gefld og mislit af niðurbældum hlátri reyndi ég að útskýra fyrir smávaxna aktivistanum að það væri nú ekki til siðs að kalla fólk leiðinlegt og að Davíð Oddsson, líkt og allir aðrir, hefði örugglega sína kosti ( jafnvel þótt að mér dytti enginn í hug í fljótu bragði.) Ég var nokkuð ánægð með þann andlega þroska sem þessi viðbrögð mín gáfu til kynna þar sem að það nægir mér að hugsa um þennan þvermóðskufulla krullhaus þessa dagana til að sjá rautt. Markús er mikill lestarhestur líkt og móðir sín og það að fá ekki sögu fyrir svefninn er sú hræðilegasta refsing sem hann getur hugsað sér og þessar umræður okkar hlutu eftirfarandi endi : ,, Mamma, ef að hann Davíð passar sig ekki þá fær hann enga bók".

Ta, ta Linda " móðir næsta Marxs? " Markúsardóttir

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.02.2009 15:50:50 / Adnil

16.02.2009 08:30:35 / Adnil

Mánudagur

Já, þá er hann runninn upp þessi þrettánhundraðasti og tíundi mánudagur ævi minnar og ég er ekki frá því að ég sé með snert af öðrum í þynnku eftir skipulagðar og metnaðarfullar glasalyftingar mínar á laugardaginn sem leið. Það er óhætt að segja að það hafi ýmsar hræringar átt sér stað á Nýja - Íslandi upp á síðkastið en þar sem að ég er með öllu hætt að geta fylgst með hver á hvern og hvers vegna ætla ég að eftirláta þeim sem fá borgað fyrir að fylgjast með síbreytilegu ástandinu þær umræður. Ég er aftur á móti að lesa sérlega áhugaverða bók sem ber nafnið : How the 21st century is making you fat ( samsæriskenningar eru sérlegt áhugamál mitt ). Það hefur nú gerst að þeir sem eru of feitir ( 1 milljarður manna) eru nú orðnir fleiri en þeir sem þjást af hungri ( 800 milljónir). Þetta eru frekar sláandi upplýsingar, eiginlega svo að ég skil ekki að mér hafi tekist að ranka við mér eftir þetta rothögg. Hér er lausnin komin, of feita fólkið skiptir hreinlega um diska við þá sem minna mega sín. En ég þarf víst að fara að lesa brot úr Gamla testamentinu og Kóraninum fyrir bókmenntasögu og get hreinlega ekki skrifað meira í bili sökum einskærrar tilhlökkunar. Hvað er jú betra en ævintýri fyrir tilgangsleitandi fólk svona í morgunsárið ?

Ta,ta Linda Björk

» 0 hafa sagt sína skoðun

Heimsóknir
Í dag:  12  Alls: 47060