|
30.04.2009 19:35:11 / Adnil
Á mánudeginum eftir kosningar valhoppaði ég glaðbeitt niður stigann heima hjá mér í þeim tilgangi að verða mér úti um blað svo ég gæti séð það enn eina ferðina hversu vel mínu vinstri græna fólki hafði gengið og það í prentmiðli. Við mér tók fyrirsögnin "Konur 43 % þingmanna" Hvernig stendur á þeim þessum endalausu merkimiðum? Hér eru vissulega góðar fréttir á ferðinni enda ber hverju skrefi í átt til aukins jafnréttis að fagna en til að jafnrétti geti orðið fullkomnað verðum við að hætta að merkja okkur sem KARLmenn og KVENmenn og vera bara í sameiningu menn. Manneskjan sem slík á að skipta máli en ekki kynfærin sem hanga, eða hanga ekki, utan á henni. Fyrirsagnir á borð við " Karlmenn í meirihluta" eða " Karlmaður starfandi forsætisráðherra" mundu m.ö.o aldrei enda í póstkassanum hjá manni. Fyrst að ég er nú dottin í jafnréttisgírinn sé ég enga ástæðu til að stoppa hér. Fyrir augum mínum á facebook hefur nú dansað (hún reyndar dansar ekki né hreyfir sig neitt ef út í það er farið en smá skáldmæli hefur aldrei skaðað neinn) í þónokkurn tíma auglýsing frá tölvufyrirtæki sem hljómar um það bil svona :
Stelpur, komið og kíkið á bleiku fartölvurnar okkar. Ískalt coke light í boði meðan skoðað er.
Hlýtur þetta ekki að vera brandari? Er ekki alveg ábyggilega árið 2009? Það er ekkert tekið fram um tölvuna annað en að hún sé bleik og að þú getir svalað þorstanum með hitaeiningasnauðum en auka og sætuefnisfylltum gosdrykk á meðan þú skoðar bara hversu bleik hún í raun og veru er. Annað dæmi um eitthvað sem aldrei mundi sjást beint að karlmanni :
Strákar, komið og kíkið á bláu tölvurnar okkar og fáið dós af einhverjum svakalega karlmannlegum drykk (eitthvað eins og Musclejuice væri viðeigandi sé það til) á meðan birgðir endast.
Þetta væri sárlega móðgandi fyrir karlmenn líkt og sú fyrri, sem því miður er raunveruleg, er fyrir kvenmenn. Eða í anda þess sem ég skrifaði hér fyrir ofan, að ætlast til að vara sé keypt vegna þess að hún er svona eða hinsegin á litin er móðgandi fyrir manneskjur.
Ta, ta Linda " og jafnrétta" Markúsardóttir.
»
25.04.2009 21:44:41 / Adnil
Ég skundaði með kross yfir sjálfstæðisillfyglinu inn í Hagaskóla fyrr í dag og setti x við batnandi afkomu eyjunnar okkar fögru og vonandi aðeins eitt af ófáum krossmerkjum yfir gröf Sjálfstæðiflokksins sem ráðandi stjórnmálaafls á Íslandi. Ef útkoman úr kosningu dagsins verður hægri stjórnmálaarminum í vil er ekkert annað að gera en að grípa nærtækan þvottabala og láta sig fljóta sem leið liggur til nærliggjandi lands. Annars er ég að læra fyrir próf og er þar af leiðandi alls ekkert að skrifa þessu færslu. Fyrstu tölur úr Árnagarði eru eftirfarandi: Blaðsíður : Óþægilega margar. Höfuðverkir : Einn. Nömm borðuð yfir daginn : Hver er eiginlega að telja ? Magasár í myndun : Eitt. Til að koma í veg fyrir að magasárið komist á þing ætla ég að halda áfram.
Linda "allt er vænt..." Markúsardóttir.
»
22.04.2009 00:00:49 / Adnil
Ég er búin með ritgerðina mína og í tilefni þess kemur hér ágætis ráðlagður dagskammtur af vitleysu :
Nú er úti sviptivindur, nú er fokinn Esjutindur. Ef ég ætti úti kindur þá yrðu þær betri alþingsmenn en Ástþór Magnússon
Nú er úti enginn vindur, nú er gylltur Esjutindur. Ef ég ætti úti kindur þá mundi ég koma þeim í var áður en Sjálfstæðisflokkurinn reynir að virkja þær.
Nú er úti viðbjóðsvindur nú er blautur Esjutindur. Ef ég ætti úti kindur þá mætti ég ekki vera að þessari vitleysu þar sem ég væri að afla atkvæða fyrir Framsóknarflokkinn.
Enn er von á meiri vindi nóg komið af Esjutindi. Ef hér léki allt í lyndi þá þyrftum við ekki að eyða peningum í þessar kosningar.
»
19.04.2009 17:29:55 / Adnil
Hér á Eggertsgötunni er vart þverfótað fyrir trúarritum, bókum um túlkanir á þessum trúarritum og örgum, eirðarlausum nemendum sem óttast að lesi þeir eina málsgrein enn um að karlmaðurinn sé konunni æðri muni það valda óafturkræfum heilaskaða. Nemandinn er að vísu bara einn en er orðinn nægilega þreyttur á þessari ritgerð til að það dugi fyrir að lágmarki 3 fullvaxta stúdenta til viðbótar. Það freistar mín að kalla ritgerðina : Páll postuli og Múhammeð spámaður voru kvenhatarar og ógeðismenn en efast um að kennarinn minn kynni að meta svo ómálefnalegan titil. Hún fjallar sem sagt um hlutverk og birtingarmyndir kvenna í nokkrum súrum Kóransins og bréfum Páls postula í Nýja testamentinu. Sá sem getur sagt mér af hverju mér þótti þetta góð hugmynd að ritgerðarefni hlýtur að launum uppétið páskaegg og kassa fullan af stuðningsyfirlýsingum við Sjálfstæðislokkinn. Það fyrrum stórveldi íslenskra stjórnmála auglýsir sig m.a á strætóskýli við Klambratún fyrir komandi kosningar. Á plakatinu stendur : Eðlilegt viðskiptaumhverfi - Sjálfstæðisflokkurinn. Ég hjólaði fram hjá þessari auglýsingu um daginn og komst ekki hjá því að hugsa að það væri nú aldeilis ljómandi hjá þeim að ætla að bjóða upp á eðlilegt viðskiptaumhverfi. Sú hugsun hafði ekki mallað lengi í heilanum þegar ég áttaði mig á því að ég hef ekki hugmynd um hverju þeir eru að lofa né verður eitthvað til að á komandi mánuðum/árum sem mun falla undir eðlilegt viðskiptaumhverfi á Íslandi. Það er hreint út sagt með ólíkindum hversu mikið stjórnmálamenn ná að blekkja almúgann með orðum sem hljóma vel en standa í raun ekki fyrir nokkurn skapaðan hlut! Bætt kjör! ( fyrir hvern, kjör hverra á að skerða og hvar á að skera niður), Eðlilegt viðskiptaumhverfi ( auðvitað, ekki viljum við búa við óeðlilegt viðskiptaumhverfi), Fjölskylduna í fyrsta sæti! ( í þjóðfélagi þar sem fólk þarf nú að vinna sem aldrei fyrr til að rétta af síversnandi fjárhag fjölskyldu sinnar eða fær rausnarlega úthlutað x mörgum krónum í atvinnuleysisbætur á mánuði.) Viðhöldum götumyndinni! (Ekki viljum við nú ganga um borg sem samanstendur af tómum götuómyndum). Ég hef ekki farið leynt með óbeit mína á Sjálfstæðiflokknum en þessir orðaleikir eru langt í frá eingöngu bundir við hann. Nafngift hans ber þessu þó glöggt merki en hver kýs ekki að vera sjálfstæður einstaklingur og tilheyra sjálfstæðri þjóð líkt og nafngift Framsóknarflokksins en hver sá sem ekki sækir fram getur fátt gert annað en staðið kyrr eða þá farið aftur. Hér gildir, líkt og annars staðar, að hugsa sjálfstætt (ekki sjálfstæðisflokksstætt) þar sem máttur vel valinna orða er óumdeilanlegur. Látum fagurgalann ekki sökkva endanlega nú þegar löskuðu skipi.
Ta,ta Linda " 414 orð sem hefðu betur fjallað um eitthvað tengt ritgerðinni minni" Markúsardóttir.
»
15.04.2009 23:21:52 / Adnil
Nei, ekkert ljóð í dag. Músan mín yfirgaf mig svo að athygli mín yrði áreiðanlega óskert yfir komandi skemmtileg heitum en vorönnin er alveg að verða búin. Aðeins einn kennsludagur eftir áður en óheft og, að mestu leyti, sérlega óvönduð ritgerðarskrif hefjast auk stöku viðkomu nefsins ofan í bókum, fésbókum sem og örlítið minna móðins kennslubókum. Man einhver hvernig lífið var fyrir komu facebook, myspace og annara viðlíka vefsíðna ? Maður getur nú ekki annað en hugsað til vesalings fólksins sem neyddist til að njósna um náungann með ekkert nema kíki að vopni! En að öðru. Ég fór fótgangandi að sækja frumburðinn í og dag og gekk sem leið lá í gegnum Hljómskálagarðinn. Þar voru samankomnar nokkrar skapstyggar grágæsir (væntanlega til að funda um yfirvofandi brauðskort í samfélagi góðfyglanna) þegar ein þeirra tók sig til og beit grunlausan kött í rófuna. Ég hló að vanþekkingu þessarar ágætu gæsar á goggunarröðinni maður - hundur - köttur- fugl um leið og ég velti því fyrir mér hvort kattataka væri það sem koma skal þar sem hústakan fór ekki sem skyldi. Jæja ágætu samnemendur, gleðilega prófatíð! Og fyrir ykkur sem ekki eruð í prófum .. tja, ég hef bara ekkert við ykkur að segja.
Ta,ta Linda " fugl bítur kött" Markúsardóttir.
»
12.04.2009 21:20:05 / Adnil
Í búðunum
fást blóðug páskaegg,
á toppum þeirra trjóna
krossfestir menn.
Krýp á altari
neysluhyggjunar,
bið toppskrautin
fyrirgefningar
og bíð þeim súkkulaði.
Rís á þriðja eggi
aftur upp úr stólnum
og stíg upp til hinna.
Mun þaðan koma
um jólin
til að trúa svolítið meira.
Í nafni Góu, Freyju og Nóa.
Amen.
(LBM '09)
»
07.04.2009 11:49:27 / Adnil
Er virkilega ánægð með þetta ljóð og ætla því að lofa því að fljóta hér með fyrir þá tvo sem mögulega lesa bloggið mitt og hafa ekki enn fengið sér snoppuskjóðu.
Á fölbleikum akri
standa ferhyrndar ær
með augu svört.
Á stórri skel
stendur nakin mær,
feimin en björt.
Á mjúkum steini
liggur bráðnandi úr,
tímalaust
og öskrandi maður
á brú gerðri úr múr
um bleksvart haust.
Í málverki miðju
stend ég
og nýt þessa alls
á meðan heimurinn
utan rammans
riðar til falls. (LBM '09)
Ta,ta Linda " skrifari" Markúsardóttir
»
03.04.2009 21:05:35 / Adnil
Lýðræðið Ísland hefur hafið útsölu sem og mögulegan útflutning á skrautlegum stjórnmálamönnum til að reyna að rétta af bágan fjárhag. Fremstur fer þar í flokki eyjamaðurinn Árni Johnsen en hvaða þjóðþing þessa heims kannast ekki við að skort á söng og almennum kjaftavaðli ? Næstan ber að nefna Bjarna Benediktsson, manninn sem lítur út eins og plastmaðurinn Ken og er með heila í stíl! Á baki hans má finna takka og ef á hann er þrýst heyrist hann umla stóriðja. Ástþór Magnússon er enn einn sem fæst um þessar mundir á sérlega hagstæðu verði, maðurinn sem færði litla Íslandi kreditkortin, hefur boðið sig fram til forseta oftar en forsetakosningar hafa farið fram og klæðist jólasveinabúningum við sérstök tilefni. Hægt er að kaupa hvern þeirra stakan fyrir sanngjarnt magn af gjaldeyri eða fá magnafslátt séu þeir keyptir saman. Æi, hvern er ég að blekkja? Það kaupir þetta enginn. Ekki einu sinni ég og ég bý við þetta.
Ta, Ta Linda " lýð/glapræði?" Markúsardóttir.
»
01.04.2009 16:47:53 / Adnil
Þá er hann runninn upp þessi sérlega þreytandi og lítt hlægilegi dagur þar sem pósthólfið manns sem og símtæki rauðglóa með fréttum af upplognum börnum, brúðkaupum, skyndilegum framabreytingum og/eða inngöngu í hin og þessi trúfélög. Ber að taka það fram að aprílgabb telst ekki fullgilt nema sá sem fyrir gabbinu verður fari yfir að lágmarki einn þröskuld. Þá að öðru. Í fyrrdag átti ég leið um Ármúlann á bláu and-lúxusbifreiðinni minni og sá ég þar, á tali við annan mann, engan annan en Jón Baldvin Hannibalsson. Þennan dag skein sólin hátt á lofti eins og hún vill svo gjarnan gera í um það bil 9 daga ár hvert á eyjunni okkar fögru og það var eitthvað sérlega stóískt og valdmannslegt við hann Jón Baldvin þar sem hann stóð þarna með sólina á bak við sig með órætt bros á vörum. Eitt augnablik langaði mig að leggja bílnum, taka í hönd Jóns og biðja hann um að bjarga Íslandi úr þessum hræðilegu ógöngum. Maður sem hefur sólina með sér í liði hlýtur að vera fær um það.
Ta, Ta Linda "1. Jón" Markúsardóttir.
»
|